Helgin 19. og 20. desember
Nú þegar spennan er í algleymingi hjá yngstu kynslóðinni er ef til vill upplagt að skella sér í jólaheimsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þangað kíkir jólasveinn dagsins í heimsókn klukkan 13:30 alla daga fram að jólum og segir sögur af sér, bræðrum sínum og lífinu í Fjöllunum. Frá klukkan 14:00 til 15:00 þann 19. og 20. desember mun hryssan Hilda draga um garðinn ríflega aldargamlan hestvagn og geta gestir farið með en ein ferð kostar einn skemmtimiða. Þá gefst gestum einnig kostur á að skella sér í ókeypis lestar- og hringekjuferð um helgina frá klukkan 12:30 til 17:00. Í Hafrafelli verður margt að skoða og þar verður hægt að mála og skreyta skeljar sem munu sóma sér vel á jólatrénu.

