Sauðfé fær jólaklippingu
Sunnudaginn 6. desember fær sauðfé Fjölskyldu- og húsdýragarðsins árlega jólaklippingu sína. Þá kemur Guðmundur Hallgrímsson sem hefur rúið ófáar kindurnar í gegnum tíðina með föruneyti til rúningsverka í garðinum. Rúningsteymið mun hefjast handa upp úr klukkan 13 og Guðmundur verður sem fyrr ekki spar á lýsingar í kringum verkið. Ásamt rúningsmönnum verða líka með í för konur frá Ullarselinu á Hvanneyri sem munu vinna úr ullinni jafnóðum.

