Kálfur undan Brák

27.11.2009

Í bítið í morgun, föstudaginn 27. nóvember bar bröndótta kýrin Brák sem býr í fjósi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins rauðhuppóttri kvígu. Heldur er því líflegt um að litast í fjósinu því fyrir rétt rúmri viku bar kolskjöldótta kýrin Skræpa rauðskjöldóttum nautkálfi. Þeir félagar njóta nú góðs af mikilli mjólkurframleiðslu mæðra sinna sem er í hámarki strax eftir burð. Báðir fengu þeir broddmjólkina, fyrstu mjólk eftir burð en hún er þeim lífsnauðsynleg. Ákveðið hefur verið að gefa gestum tækifæri á að skila inn hugmyndum að nöfnum fyrir kálfana í Hafrafell sem er hús sem stendur við refagirðinguna. Opið verður í Hafrafelli frá klukkan 13 til 16 alla daga fram að jólum en þar gefur að líta ýmsa muni tengda dýrahaldi og dýrum, naggrísi, hamstra, froska og fleiri spennandi dýr. Allar helgar fram að jólum verður hægt að fara í hestvagnaferðir þar sem hryssan Hilda dregur rúmlega aldargamlan hestvagn um garðinn. Ein ferð kostar einn skemmtimiða.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: