Skræpa borin
Kýrin Skræpa bar um klukkan níu í gærkvöld rauðskjöldóttum bolakálfi. Burðurinn gekk hægt en örugglega.
Dýrahirðar áttu von á að Skræpa færi að bera svo það var búið að fylgjast grannt með kúnni síðustu daga. Upp úr hádegi í gær var kýrin farin að ókyrrast og um þrjú voru farnar að koma hríðir. Skræpa tók þessu öllu með rólegheitum og lét náttúruna vinna sitt verk. Bolakálfurinn koma svo í heiminn eins og áður segir um klukkan níu. Kálfurinn byrjaði strax að drekka broddinn sem er mikilvægur fyrir kálfa fyrstu klukkustundirnar eftir að þeir koma í heiminn. Í dag hefur hann svo verið duglegur að drekka milli þess sem hann sefur í kálfastíunni sinni sem er við hliðina á kúastíunni, enda þreyttur eftir átök gærdagsins. Starfsfólk garðsins vill minna gesti á að sýna kálfinum nærgætni um leið og heilsað er upp á kálfsa.
Aðeins er byrjað að jólaskreyta garðinn og er gaman að koma í heimsókn þegar rökkva tekur til að skoða jólaljósin. Eftir því sem nær dregur aðventu mun svo bætast á skrautið og nokkuð hefðbundin jóladagskrá.


