Vinamorgnar í nýju hest- og fjárhúsi
Vinamorgnar í nóvember
Nú hefur hest- og fjárhús Fjölskyldu- og húsdýrargarðsins verið opnað að nýju. Nýjar innréttingar í hesthúsi og endurbættar innréttingar í fjárhúsi líta vel út og svo virðist sem hrossum, kindum og geitum líki endurbætt umhverfið vel. Húsið er nú opnara en áður og geitastían hefur verið stækkuð. Hrossin eru í eins hesta stíum í stað tveggja hesta áður og við norðurenda hússins er tveggja hesta stía sem getur nýst graðhestum komi þeir í heimsókn. Í ljósi opnunarinnar bjóðum við árskortshöfum að koma í svo kallaða “Vinamorgna” í nóvember. Þeir verða í boði helgarnar 7., 8., 14., 15, 21. og 22. nóvember. Sjá frekari upplýsingar um fyrirkomulag og skráningu í “lesa meira”.
Takmarka þarf fjölda þátttakenda í hvern morgunn og þarf því að skrá þáttöku fyrirfram. Miðað er við að börnin fái að njóta sín við verkin og takmörkum því fjöldann við 20 börn á hverjum morgni. Foreldrar koma að sjálfsögðu með börnum sínum og fylgjast með og aðstoða ef þurfa þykir.
Dagskráin verður á þá leið að árskortshafar mæta klukkan 08:30 og nauðsynlegt er að mæta stundvíslega því hliðið verður opnað sérstaklega fyrir þá og lokað jafnóðum og verkin hefjast.
Hópnum verður skipt í fjárhús, hesthús, fjós og svínastíu. Dýrunum verður hleypt út og eftir það verður hafist handa við þrif og skítmokstur en þrifunum verður lokið um klukkan 10 en þá er garðurinn opnaður.
Að loknum vinamorgni verður tilboð í Kaffihúsi fyrir árskortshafa; Flatbrauð með hangikjöti, Berlínarbolla og kaffi / kakó á 500 krónur. Einnig geta árskortshafar haft með sér nesti. Að lokum fá árskortshafar að aðstoða dýrahirða við fóðrun villtu dýranna. Fyrst verður hreindýrunum gefið klukkan 10:30, þá selunum klukkan 11:00 og refum og minkum klukkan 11:30.
Áhugasamir eru beðnir að skrá sig á netfangið unnur@husdyragardur.is og látið fylgja með árskortsnúmer og fjölda þátttakenda, barna og fullorðinna. Takið fram hvaða dagur hentar ykkur best og ef til vill einn til vara. Látið endilega líka vita hvort þið hafið áhuga á að fá ykkur tilboð í kaffihúsi að loknum verkum.

