Litrík vænghöf
Nú hafa verið sett upp litríkar myndir af vænghöfum fugla á vegg smádýrahússins. Þar geta börn á öllum aldri skoðað þau og borið sig við þau sér til gagns og gamans. Til að auðvelda okkur gerð þessara vænghafa höfðum við samband við Guðmund A. Guðmundsson á Náttúrufræðistofnun Íslands sem var boðin og búinn til aðstoðar og færum við honum bestu þakkir fyrir.

