Ungarnir hennar Lottu
Hvort kom á undan eggið eða hænan ?
31.8.2009
Hænan Lotta sem héðan í frá verður kölluð Frjósama Lotta kom starfsfólki Fjölskyldu- og húsdýragarðsins heldur betur á óvart um daginn þegar hún mætti í fuglagarðinn með 11 unga á eftir sér. Hún fór vel með það að hún lægi á eggjum því hún fór í langt ferðalag upp á hreindýrastykki og verpti þar. Þegar ungarnir voru orðnir ferðfærir kom hún með þá í fuglagarðinn og ver þá vel og hleypir engum að sér og ungunum. Ungarnir fá að kíkja út í fuglagarð hvern dag en annars eru þeir hafðir í Smádýrahúsinu þar sem gestir geta heimsótt þá.
Hænurnar í garðinum eru íslenskar landnámshænur en þær eru fremur litlar og harðgerðar og skartar öllum regnbogans litum. Þessi tegund hefur ekki hentað sem varphænur og um miðja síðustu öld hófst markviss ræktun erlendrar varptegundar.
Varð fyrir valinu hvít tegund ,hvítur Ítali, frá Miðjarðarhafinu að uppruna. Frjóvguð egg eru flutt inn til landsins reglubundið og þeim ungað út í sérstakri sóttkví. Þeir dvelja svo um stund í einangrun áður en þeim er dreift til kjúklinga- og eggjaframleiðenda víða um land.



Til baka
Senda grein
Prenta greinina