Salibunuferðir næstu helgi!
Komandi helgi 29. og 30. ágúst er eins og áður hefur komið fram síðasta opnunarhelgi leikækjanna í Fjölskyldugarðinum þetta árið, en eftir sem áður verður opið í Húsdýragarðinum, Vísindaveröldin einnig og hægt verður að eiga góðar stundir á þeim leiksvæðum sem ekki þarf mönnun við. Garðurinn er opinn frá klukkan 10 til 17 alla daga og kaffihúsið er opið frá 10 til 16:30.

