Vetraropnun og Níðhöggur

Bilanir í kjölfar skemmdarverka

7.8.2009

Nú líður að því að vetraropnunartími hefji innreið sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Vetraropnun verður frá og með 17. ágúst og verður þá opið frá klukkan 10 til 17 í stað 10 til 18 en í fyrstu viku vetraropnunar verða leiktækin á sínum stað og einnig helgarnar 22. og 23. ágúst og 29. og 30. ágúst. Frá og með 31.ágúst verður öllum leiktækjunum sem þurfa starfsmenn við lokað fram til vors.

Stefnt er að því að hafa vinamorgna fyrir árskortshafa á haustmánuðum en dagsetningar þeirra ráðast af því hvenær hesthúsið sem nú er verið að endurbæta verður tilbúið.

Okkur þykir leitt að segja frá því að Níðhöggur, fallturninn okkar, verður að öllum líkindum lokaður út sumarið. Eins og mörg ykkar hafa því miður orðið vör við þá hefur turninum verið lokað reglulega í sumar vegna viðgerða. Það lítur út fyrir að þessar bilanir séu afleiðingar skemmdarverks sem framið var að næturlagi í fyrrasumar og virðist ætla að verða garðinum dýrkeypt. Tæki af þessu tagi er alls ekki forsvaranlegt að hafa í gangi ef virkni þess er ekki talin örugg.

Nú eru komnar fram skemmdir á innri vökvatjakki turnsins og sem stendur er efnið í hann fast í tolli og mikil vinna framundan við viðgerðir. Þetta er mikið fjárhagslegt tjón fyrir garðinn því viðgerðirnar í sumar og sú sem framundan er telja orðið milljónir. Þá er ótalið það tjón sem gestir garðsins verða fyrir vegna óánægju með að þetta vinsæla tæki sé svo oft bilað.

Við biðjumst innilega velvirðingar á þessum bilunum en getum aðeins vonað að gestir sýni þessu skilning.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: