Guttormur endurgerður

30.7.2009

Endurbyggingu útilistaverksins Guttorms er nú lokið en eins og kunnugt er var upprunalega verkið eyðilagt að nóttu til 9. júlí þegar óprúttnir aðilar báru eld að því.

Það voru 23 krakkar sem unnu Guttorm upphaflega sem skólaverkefni en þau fengu styrk til verksins úr forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar. Þau nutu leiðsagnar myndlistarkvennana Ólafar Nordal og Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur en einnig var Kristín Þorleifsdóttir formaður íbúasamtaka Laugardals þeim innan handar. Það var ánægjulegt þegar Húsasmiðjan gaf efni til endurgerðarinnar, Atlantsolía lagði til smið og Reykjavíkurborg lagði til aðstöðu og starfsmenn en verkið var sem fyrr gert í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Guttormur endurgerður verður kynntur gestum garðsins formlega á Stuðmannatónleikunum í garðinum sunnudaginn 2. ágúst næstkomandi.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: