Fallegasta fiðurfé landsins

26.6.2009

Hænusýning Eigenda- og ræktendafélags Landnámshænsna verður haldin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardaginn 27. júní. Gestum á laugardag mun gefast kostur á að kjósa fallegustu hænuna og hanann.

Klukkan 16.00 mun svo fara fram verðlaunaafhending þar sem eigendum fallegasta hanans og fallegustu hænunnar verða afhent verðlaun. Fiðurfé á öllum aldri verða til sýnis og gefst gestum meðal annars kostur á að fylgjast með hænuungum skríða úr eggjum á staðnum.

Markmið þessa félags er fjölþætt en það hefur það meðal annars að markmiði að kynna, viðhalda og vernda stofn landnámshænsna og að skapa hænunum sess meðal landsmanna. Allar nánari upplýsingar um starfsemi félagsins er að finna á heimasíðu þess www.haena.is



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: