Jónsmessugleði

19.6.2009

Jónsmessugleði hefur verið haldin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum undanfarin ár og verður haldin í ár með breyttu sniði. Fram til þessa hefur verið opið yfir miðnættið en í ár verður gleðin frá klukkan 15 til 18 þriðjudaginn 23. júní.  Þá gefst gestum meðal annars kostur á að kynna sér lækningarmátt jurta sem týna skal á Jónsmessunótt, aðfaranótt 24. júní og heimsækja spákonu.  Afsturlunarte geta gestir tekið með sér heim ef ske kynni að sturlun leggist yfir þá á Jónsmessunótt.  Þá verður hellt upp á Kúmenkaffi í Kaffihúsinu sem bragðast best með ljúfengum Ástarpungum og fleira þjóðlegu góðgæti.  Sagan um Selshaminn verður lesin strax að lokinni selagjöf klukkan 16:00. 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: