Sögubíllinn Æringi
Sóla Grýludóttir mætir á Sögubílnum Æringja 15., 16. og 18. júní klukkan 14:00 og segir krökkunum sögur. Sögubíllinn verður staðsettur við hestagerðið. Þriðjudaginn 23. júní mun Sóla vera við bíl sinn með sögustund klukkan 14.00 og 15.00. Eftir selagjöf klukkan 16.00 ætlar Sóla Grýludóttir að segja sögu tengda Jónsmessunóttinni mögnuðu.

