Nýr svamlandi íbúi

2.6.2009

Júní mánuður hófst með gleðitíðindum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal þegar urtan Esja kæpti sprækum selkópi. Esja er landselur líkt og aðrir selir garðsins og kæpa landselsurtur á vorin en útselir sem einnig kæpa við Íslandsstrendur kæpa á haustin. Landselskópar eru því oft kallaðir vorkópar.

Við kæpingu vega kóparnir um 15 kg en eru fljótir að þyngjast enda er urtumjólk gífurlega fiturík. Þeir eru á spena í um fjórar vikur og á þeim tíma hafa þeir yfirleitt tvöfaldað þyngd sína. Kóparnir missa hvít fósturhár sín við kæpingu og eru því syndir strax og eru duglegir að fylgja mæðrum sínum eftir.

Nú bíður starfsfólk garðsins spennt eftir að sjá hvort urturnar Kobba og Særún fylgi ekki örugglega í kjölfar Esju og kæpi áður en langt um líður.

Esjukópur 2009

 

Esjukópur í góðum félagsskap, 020609

 

Esja og kópur



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: