Það er komið sumar
sól í heiði skín
Í morgun var garðurinn opnaður með sumarsniði. Þá lengist opnunartíminn um klukkutíma og er opið milli klukkan 10.00 til 18.00 alla daga. Dagskráin í kringum dýrin breytist örlítið og hægt er að kynna sér dagskrána í lesa meira.
Rykið hefur verið dustað af skemmtitækjunum og eru þau í gangi alla daga á opnunartíma.
Dagskrá
10.00 Garðurinn opnaður
10.45 Hreindýrum gefið
11.00 Selum gefið
12.00 Refum og minkum gefið
13.00 Klapphorn hjá kanínum
14.00-14.45 Hestar teymdir undir börnum við hesthús
15.00 Svínum hleypt út ef veður leyfir
15.15 Gefið í sjávardýrasafni
16.00 Selum gefið
16.15 Dýrum í smádýrahúsi gefið
16.30 Hestar, kindur og geitur settar í hús
17.00 Svínum gefið og mjaltir í fjósi
17.45 Refum og minkum gefið
18.00 Garðinum lokað

