Gyltan Bestla gotin
Gyltan Bestla hefur nú í nægu að snúast enda gaut hún fallegum grísum sl. sunnudag 17. maí. Gotið gekk vel og Bestla annast grísina af mikilli kostgæfni og gefur sér góðan tíma að gefa þeim að drekka milli þess sem hún og grísirnar fá sér kríu. Faðir grísanna er gölturinn Gullinbursti sem býr í næstu stíu við Bestlu og grísina og lætur sér fátt um finnast um þessa gríðarlegu fjölgun svína í garðinum. Grísirnir liggja undir hitalampa mestan part dagsins enda viðkvæmir fyrir kulda en stækka hratt, nánast að starfsfólk sjái mun á þeim dag frá degi.

