Sauðburður heldur áfram
Ærin Eygló varð þriðja til að bera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þetta vorið. Hún bar svörtum hrúti og grárri gimbur þann 6. maí. Nú er þriðjungur ánna því borinn og spennandi að sjá litafjölbreytnina og kynjaskiptinguna hjá þeim sex sem eru óbornar.

