Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna rúllað af stað

6.5.2009

Í morgun (6.mai) var heilsu- og hvatningarátakinu Hjólað í vinnuna rúllað af stað sjöunda árið í röð í veitingatjaldi Fjölskyldu og húsdýragarðsins

Fram kom í ávarpi Ólafs Rafnssonar forseta ÍSÍ að frá árinu 2003 hefur átakinu heldur vaxið fisku um hrygg. Fyrsta árið voru þátttakendur 533 og voru þá hjólaðir sem svarar rúmlega 16 hringum í kringum landið. Síðasta ár voru þátttakendurnir 7065 og voru hjólaðir 410,398 kílómetrara sem samsvarar rúmlega 10 hringjum í kringum sjálfa jörðina.

Þetta árið vera eflaust enn fleiri þátttakendur og keppinin hörð því ekki má gleyma því að um keppni er að ræða.

           Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra, Kristjá Möller samgönguráðherra og Sigrún Stefánsdóttir dagskrárstjóri ríkisútvarps settu keppnina formlega með orðum og hjóluðu svo galvösk af stað.

 

Hægt er að finna ferkari upplýsingar um átakið á www.hjoladivinnuna.is

 

Við starfsmenn tökum undir orð heilbrigðisráðherra og segjum góða ferð !

Picture_109

 

Picture_115



Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: