Háttarlag dýra getur sagt til um framtíðina !
Mörgum finnst gaman að hugsa um framtíðina og reyna með öllum hugsanlegum ráðum að sjá hvað framtíðin muni bera með sér. Til eru allnokkur ráð um hvernig megi lesa í hegðun dýra til að segja fyrir um hitt og þetta. Þó aðallega um gestkomur eða hvernig veðrið muni vera.
Sem dæmi má nefna að hegðun kúa getur sagt til um veður og gestkomu. Ef kýr er óróleg og sparkar til dæmis aftur fyrir sig er sagt að búast megi við gesti. Ef kýr baular á leið sinni út á tún á að létta til en bauli kýr síðdegis segir fjöldi baula til um daga sem haldast eiga þurrir.
Kóngulær eru lúnknar með margt og spinni kónguló vef í dyrum er gestur væntanlegur. Sá sem lendir í því að kónguló sveiflist fyrir framan viðkomandi má reikna með því að fá bréf á næstunni. Ef kona er að fæða barn og dordingull er á svæðinu er æskilegt að setja handarbakið varlega undir dordingulinn og segja: „Upp, upp fiskikarl, kona liggur á gólfi, upp, upp, fiskikarl kona liggur á gólfi“ þetta skal endurtekið þar til dordingullinn er kominn alla leið upp spottann sinn. Ef þetta tekst án þess að þráðurinn slitni á fæðingin að fara vel.
Flestir þekkja þjóðtrúna um að drepi menn járnsmið fari að rigna. Stundum er jafnvel sagt að drepi maður járnsmið með hendinni handlegsbrotni maðurinn en sé fóturinn notaður til þess að drepa brotni fóturinn.
Margir halda mikið upp á hunda og eru þeir ekki undanskildir þeirri náðargáfu að geta spá fyrir um hluti. Sagt erð að liggi hundur fram á lappirnar með trýnið á löppunum og snýr í átt að hurð sé gestur væntanlegur inn um dyrnar. Ef hausinn á hundinum liggur örlítið til hægri er heiðarlegur getsur væntanlegur en sé hausinn til vinstri er betra að læsa að sér því þá er von þjófóttum gesti. Hundar geta varðað við komu leiðinlegara gesta með því að liggja úti með hausinn fram á lappirnar en snúa bakhlutanum í heimreiðina. Snúi þeir að heimreiðinni er skemmtilegur gestur að koma í heimsókn.
Allt er þetta gömul hjátrú sem kannski er erfitt að snúa upp á nútímann en flest á þó enn við og nú er bara um að gera að fylgjast vel með seppa og sjá hvort ekki sé von á góðum gesti eða að bréf sé á leið í pósti. Kannski maili bara ;-)
Heimild: Símon Jón Jóhannsson. 2003. Spádóma bókin. Vaka-Helgafell, Reykjavík. bls.282-292.

