Opið alla páskana.

8.4.2009

Það verður opið frá klukkan 10 til 17 alla páskana í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Fyrstu 100 krakkarnir sem heimsækja garðinn dag hvern yfir páskana fá Páskaegg nr. 3 frá Nóa Siríus að gjöf. Gestir geta á skemmtilegan hátt borið sig saman við dýrin í leik sem kallast "Keppt við dýrin".  Meðal annars verður hægt að fara í kapp við ímyndaðan snigil og bera ummál ýmissa líkamsparta saman við líkamsparta uxans Blakks.  Þá verður barnaguðsþjónusta Áskirkju, Langholtskirkju og Laugarneskirkju í garðinum á Páskadag klukkan 11 við Selalaugina. 

Vísindaveröldin verður sem fyrr stútfull af fróðleik og skemmtun, hestateyming verður frá klukkan 14 til 14:30 og hringekjan og Cocoa Puffs lestin verða í gangi.  Að ógleymdum dýrunum sem taka á móti gestum í páskaskapi með sínum hógværa hætti.  Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins óskar mönnum og dýrum ánægjuríkra páska. 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: