Sumarnámskeið 2009 - skráning hafin
Skemmtileg námskeið
Námskeiðið stendur 10–12 ára krökkum (f. 1997–1999) til boða í sumar.
Á námskeiðinu vinna krakkarnir með dýr garðsins og námskeiðið því upplagt fyrir krakka sem áhuga hafa á dýrum almennt. Þá er einnig farið í skemmtilega umhverfisfræðslu, gerðar eru vísindatilraunir og undirstöðuatriði tálgunar kynnt fyrir krökkunum. Hvern dag gefst krökkunum tækifæri á að kíkja inn fyrir girðinguna hjá einhverri dýrategund og komast þá í mikið návígi við dýrin og getur það verið mjög spennandi.
Námskeiðið er fimm virkir dagar og hefst kl. 10.00 og lýkur um kl. 15.00 en þá tekur við frjáls tími innan garðsins til kl. 18.00 ef vilji er fyrir hendi. Á lokadegi námskeiðsins er gert ráð fyrir frjálsum tíma þar sem allir þátttakendur fá passa í leiktæki Fjölskyldugarðsins.
Það komast 20 krakkar að í hverri viku en þeim verður svo skipt í tvo hópa.
1. námskeið: 15. til 19. júní (fjórir dagar)
2. námskeið: 22. til 26. júní - fullbókað !
3. námskeið: 29.júní til 3.júlí - fullbókað !
4. námskeið: 6. til 10.júlí
5. námskeið: 13. til 17.júlí
6.námskeið: 20. til 24. júlí
7.námskeið: 27. til 31. júlí
8.námskeið: 4. til 7. ágúst (fjórir dagar)
9.námskeið: 10. til 14.ágúst
Skráning á sumarnámskeið Fjölskyldu- og húsdýragarðsins er í gegnum Rafræna Reykjavík www.reykjavik.is. Þátttökugjald er 20.500 kr. sem er óbreytt verð frá fyrra ári og veittur er 20% systkinaafsláttur. Þátttökugjald fyrir 4 daga námskeið er 17.000 krónur. Innifalið í þátttökugjaldi er heitur matur í hádeginu, síðdegishressing, skemmtileg og lifandi fræðsla þar sem dýr garðsins koma mikið við sögu og dvöl í garðinum allan daginn auk dagpassa í leiktækin við lok námskeiðs.

