Hestar heitjárnaðir
Sunnudaginn 5. apríl ætlar Óskar Jóhannsson járningameistari að járna hross garðsins og hefjast járningar klukkan 12:00. Óskar ætlar að heitjárna allavega einhver hrossana. Hrossin í garðinum eru fjögur talsins, þrjár hryssur og einn hestur. Hryssurnar heita Hilda (bleikálótt), Dagvör (grá) og Gola (jarpvindótt) og hesturinn heitir Fylkir (móvindóttur, tvístjörnóttur). Endilega kíkið við og sjáið járningameistarann Óskar að störfum.

