Fjórða huðnan borin
Enn heldur geitburður áfram og í hádeginu í dag bar huðnan Ísbrá tveimur hvítum kiðlingum, hafri og huðnu. Kiðlingarnir eru því orðnir sex talsins og braggast vel en huðnan hennar Ísbráar var heldur sein að standa upp en var fljótt komin á spena þannig að útlitið er bjart. Þess má til gamans geta að af þeim fjórum huðnum sem nú eru bornar hafa þrjár þeirra borið í hádeginu og spurning með hvað þær tvær sem eru óbornar gera með þá tölfræði. Sjá má myndir af kiðlingunum hér.

