Sauðfé rúið
Næstkomandi sunnudag, 15. mars, verður sauðfé garsðins rúið inn að skinni og gefst gestum þá kostur að fylgjast með verkinu frá klukkan 13:00 og fram eftir degi. Guðmundur Hallgrímsson mun rýja. Þegar rúið er á þessum tíma árs er snoðið tekið en það er reyfið kallað þegar það er ekki orðið fullvaxið. Endilega kíkið í garðinn á sunnudag og fylgist með rúningnum.

