Vorið er komið

6.3.2009

Vorið hefur boðað komu sína í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þrátt fyrir hvíta jörð og nokkuð frost. Í gærmorgun bar huðnan Perla tveimur hvítum kiðlingum, hafri og huðnu. Perla er gráflekkótt á litinn en faðirinn heitir Brúsi og er hvítur á litinn. Brúsi virðist láta burðinn hafa lítil áhrif á sig en Perla sinnir móðurhlutverkinu að kostgæfni. 

Huðnurnar eru um tveimur mánuðum á undan áætluðum burði hjá ánum en frjálsar ástir ríkja í geitastíunni. Nú er beðið átekta með að sjá hver verður næst í röðinni að bera en líkur eru leiddar að því að það verði huðnan Ísbrá sem er einnig gráflekkótt á litinn og lestina reki þá svartflekkóttu huðnurnar. 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: