Áma og Skjöldur flutt í Laugardalinn
Nýlega fluttu kýrin Áma og kálfurinn Skjöldur í fjós Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Þar bættust þau við nautgripahópinn sem í dag telur þrjár kýr, tvo nautkálfa og einn uxa. Áma er kolótt, huppótt og með sjörnu og Skjöldur er rauðskjöldóttur en þau koma bæði frá bænum Selalæk á Rangárvöllum. Áma er kelfd (á von á kálfi) og er sett í lok maí og verður spennandi að sjá hvort kvíga bætist þá í kálfahópinn en fyrir eru hinn nýkomni Skjöldur og Kveldúlfur sem er kolóttur með stjörnu.

