Skræpa sædd
Kýrin Skræpa var sædd í dag með sæði úr nautinu Húna. Skræpa er kolskjöldótt á litinn en nautið Húni rauðskjöldóttur. Því er von á kálfi í nýja fjósinu eftir um níu mánuði og starfsfólk ber vonir um að hann verði litfagur líkt og foreldrarnir. Ekki er talað um eiginlegan fengitíma hjá kúnum en tími á milli gangmála (milli þess sem kýrin er tilbúin til mökunar) er að meðaltali 21 dagur. En hvert gangmál er ekki nema 20 klukkustundir og því þarf að hafa snör handtök þegar ljóst er að kýrin er yxna eða að ganga en hvoru tveggja merkir það að kýrin sé tilbúin til mökunar. Þegar kýr eru með kálfi er sagt að kýrin sé kelfd og venjulega kemur einn kálfur í einu þó það gerist að það komi tveir.

