Nýtt fjós tekið í notkun
Skræpa og Brák sáttar við breytingarnar
Talsverðar framkvæmdir hafa verið í fjósi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins undanfarin misseri og nú er þeim lokið. Fjósið sem fram til þessa hefur verið básafjós er nú orðið að glæsilegu lausagöngufjósi. Í lausagöngufjósi ganga kýrnar lausar um í stórri stíu þar sem er að finna sérstakan legubás og mjaltabás. Svínastíunni var ekki breytt enda hafa svínin verið í rúmgóðum stíum og fá að fara út á hverjum degi líkt og önnur dýr í garðinum. Enn sem áður er stór og rúmgóð nautastía þar sem uxinn Blakkur mun una vel við sitt og sérstök kálfastía hefur verið gerð fyrir yngstu nautgripina. Gaman er að segja frá því að nautastían er gjöf frá æsku sveitarinnar til æsku borgarinnar. Í ráðherratíð sinni sem landbúnaðarráðherra, stóð Guðni Ágústsson fyrir gjöfinni til nautsins Guttorms sem nú er fallinn frá.
Breytingarnar voru töluverðar fyrir kýrnar en þær aðlöguðust fljótt hinu nýja fjósi. Til að byrja með var sem þær héldu að þær stæðu enn á básunum og máttu þær Skræpa og Brák vart víkja hver frá annarri. Nú njóta þær frjálsræðisins og fá sér heytuggu og vatnssopa milli þess sem þær liggja makindalega á legubásunum.
Starfsfólk garðsins er ánægt með breytingarnar og bindur miklar vonir við að klaufdýrin njóti þeirra fram í ystu æsar.

