Helgin 13. og 14. desember
Nú eru fyrsti jólasveinninn kominn til byggða og gladdi Stekkjastaur hressan hóp af leikskólakrökkum af því tilefni í dag. Bræður hans Giljagaur og Stúfur hafa boðað komu sína um helgina klukkan 13:30. Dýrmundur og Rottó ætla líka að kíkja í garðinn sunnudaginn 14. desember klukkan 13:00 og sama dag klukkan 15:00 ætla félagarnir Halli og Heiðar að vera með Pollapönk. Um helgina verður einnig hægt að bregða sér í hestvagnaferðir frá klukkan 14 til 15 og kíkja í heimsókn í Hafrafell frá klukkan 13 til 16. Í Hafrafelli er meðal annars að finna skrifstofu Dýrmundar, ýmis dýr og spennandi hluti.

