Jólatilboð til leikskóla
Veitingahúsi garðsins verður fyrir jólin líkt og fyrri ár boðið upp á girnilegt jólatilboð til leikskólanemenda. Um er að ræða kakó með rjóma og piparköku eða kleinu á 350 krónur. Þeir leikskólar eða foreldrafélög leikskóla sem hafa hug á að nýta sér þetta tilboð skulu hafa samband við Fríðu í Veitingahúsinu í síma 5757 800 en panta þarf með fyrirvara.
Alla virka daga frá 1. desember og fram að jólum verður lesin jólasaga í fjósinu klukkan 10:45 og jólasveinn dagsins kíkir í heimsókn frá og með 12. desember og fram að jólum. Fylgist með fréttum af jólaundirbúningi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hér á www.mu.is.

