Nýr íbúi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.

2.11.2008

Bröndótta kýrin Brák bar fallegum nautkálfi aðfaranótt 2. nóvember. Faðir kálfsins heitir Taumur og er líkt og Brák bröndóttur og því má teljast líklegt að kálfurinn verði bröndóttur þegar fram líða stundir.

Burður gekk vel en sem stendur eru nautgripir garðsins hafðir í hlöðu inn af hesthúsi garðsins þar sem framkvæmdir standa yfir í fjósinu. Verið er að breyta fjósinu í lausagöngufjós og má gera ráð fyrir að nautgripir og svín geti flutt í ný híbýli sín á næstu dögum.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: