Sæsteinssuga í Sjávardýrasafninu

30.10.2008

Þetta dýr getur orðið allt að 1 metri á lengd og finnst allt frá tveggja metra dýpi niður á 1.100 metra. Sæsteinsugan lifir á blóði annarra dýra sem hún hengir sig á með því að festa kjaftinn við þau. Eins og algengt er með blóðsugur, dælir sæsteinsugan efni sem hindrar blóðstorknun strax eftir að hafa bitið fórnarlambið, og sýgur síðan úr því blóð. Sæsteinsugan hangir oft á ýmsum hvalategundum en hefur einnig fundist á mörgum tegundum beinfiska, svo sem þorski, síld, makríl og einnig á hákörlum. Sæsteinsugan hrygnir í fersku vatni. Endilega kíkið í heimsókn og sjáið þetta skemmtilega dýr. 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 


Viðburðir

(Hoppa yfir dagatalið)
Feb. 2012
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      
 

vefkönnun

Hvaða dýr af eftirfarandi dýrum er í uppáhaldi hjá þér?


 


Leturstærð: