Aðsókn á síðasta ári.
Í nýliðnum desember var sett aðsóknarmet en alls komu 12.290 gestir í garðinn þann mánuðinn. Fréttablaðið á sinn þátt í metinu en ókeypis var í garðinn alla aðventuna í boði Fréttablaðsins.
Alls komu 203.093 gestir í garðinn á árinu 2004 og flestir í júlí mánuði eða 48.709 gestir. Starfsfólk garðsins óskar gestum garðsins og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári og þakkar fyrir samverustundirnar á nýliðnu ári.
Þökkum gestum fyrir komuna - Velkomin aftur!

