Árskortshafar
Árskort
Góður kostur!
Hægt að kaupa einstaklings- og fjölskylduárskort í garðinn. Árskortin gilda sem aðgangsmiði inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í eitt ár frá kaupdegi og þess fyrir utan fá árskorsthafar:
- Dagpassa í leiktækin fyrir skráða korthafa .
- Skipulagðir eru vinadagar þar sem vinaklúbbsmeðlimum er boðið að koma og taka þátt í starfi garðsins.
- Tilboð í Kaffihúsinu -

Verð á árskortum og skilmálar:
Einstaklingskort |
8.500 kr. |
Fjölskyldukort* |
16.500 kr. |
Skilmálar:
Einungis þeir sem skráðir eru á árskort og skráð börn þeirra fá aðgang að garðinum og dagspassa gegn framvísun kortsins.
Kortið veitir aðgang á hefðbundnum opnunartíma og að atburðum sem eru á vegum garðsins.
Einungis foreldrar og börn þeirra geta skráð sig fyrir fjölskyldukorti .
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn áskilur sér rétt til þess að bera persónuskilríki saman við árskort sjái starfsmenn ástæðu til þess.
Misnotkun á kortinu getur leitt til afturköllunar árskortsins af hálfu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.
Hér geta áhugasamir sótt sér umsóknareyðublöð og fyllt út áður til að flýta fyrir afgreiðslu í miðasölu:
Fjölskyldukort Einstaklingskort
Nánari upplýsingar fást í síma: 411-5900 eða senda fyrirspurn til okkar: postur@husdyragardur.is

